June 15, 2006
Í dag er ég búin að stofna þennan aðgang að Elgg og það gekk mjög vel. Ég byrjaði á að skoða túr sem þeir bjóða upp á til að kynna sér möguleika vefsins og mér leist mjög vel á það sem ég sá. Þá skráði ég mig og ég fékk sent í pósti eftir nokkrar mínútur staðfestingu á skráningu og leyniorð til að gera aðganginn virkann. Þegar inn var komið var umhverfið allt mjög notendavænt og mér gekk vel að skrá mig, setja inn mynd og helstu upplýsingar um mig. Ég byrjaði svo strax á blogginu til að klára eitthvað af því sem þarf að klára. Næst reyndi ég að komast inn á heimasíðu námskeiðsins í Kennó en 3 daginn í röð tekst það ekki. Ég sá póst frá Sólveigu og þar var slóðin á WIMBA fundinn á eftir en ég komst ekki inn á hann. Ég sendi henni þá msn og hún hringdi í mig og hjálpaði mér svo að tengjast. Ég átti í smávægis erfiðleikum með að tengjast því fyrst fékk ég ekki hljóðið og míkrafóninn til að virka en svo kom það fyrir rest en mér tókst ekki að láta Quick time forritið virka sama hvað ég gerði. Það var eins og það væri ekki í tölvunni en þegar ég gáði var það samt til staðar. Ég hef ekki aðgang til að hlaða niður forritum svo ég gat ekki lagað þetta því ég er í vinnutölvunni því mín hrundi aftur í gær og er í viðgerð núna. Allavegana þá benti Sólveig mér loks á að ég kæmist inn með því að fara framhjá þessu og þá gátum við prufað að tala saman og prufa búnaðinn. Það tókst ágætlega nema vegna þess að headsettið mitt er bilað þá þarf ég að nota hátalarana í tölvunni og lausan míkrafón og þá myndast smá bergmál hjá hinum þegar ég tala. Áðan fór ég inn á Vyew og skráði mig þar inn. Það gekk erfiðleikalaust og leiðbeiningar allar einfaldar og góðar. Ég fór svo inn á svæðið sem við erum með og hlóð niður glærunum sem ég var að vinna áðan til að undirbúa glærukynningu fyrir samnemendur mínar. Á þriðjudag ákvað ég að prufa Skype og kveikti á búnaðinum. Ég hafði hlaðið forritinu niður fyrir mörgum mánuðum en bara einu sinni notað það áður. Ég sá að vinur minn sem býr í Danmörku var inni og ákvað að hringja í hann. Hann svaraði og heyrði ljómandi vel í mér en ég ekki í honum. Við töluðum samt saman í um hálftíma með því að ég talaði en hann skrifaði á msn allt sem hann þurfti að tjá sig. Það var bilað headsettið sem ég var með svo það var skýringin. Það var hálf skrýtið að vera á svona eintali en maður verður bara að fá sér annað tæki.
Posted by Kristin G. Snaeland | 0 comment(s)
Ég er alveg að flippa í þessu tæknidæmi öllu. Það sem pirrar mig mest eru allar þessar síður með aðgangsorðum og leyniorðum sem mér tekst að gleyma eða finn ekki. Mér líður eins og mest af mínum tíma fari í að leita hvar ég á að finna þetta og hvar ég á að gera hitt. Mér finnst að um algert skipulagsleysi sé að ræða og ég er bara alveg að týnast hérna í þessum áfanga. Mér finnst óþægilegt að eiga að gera eitt á einum stað og annað á einhverjum öðrum og alls staðar eru mismunandi aðgangsorð og leyniorð. Leiðbeiningarnar eru svo jafnvel á þriðja staðnum. Ég er búin að eyða 9 klukkutímum í dag og í gær í að finna út úr hvernig ég kemst inn á þessa og hina síðuna og hvernig ég tengi þetta og hitt. Mér finnst ég hafa eytt miklum tíma í eitthvað sem þyrfti ekki að taka svona mikinn tíma. Til að toppa allt kemst ég ekki inn á moodle síðu námskeiðsins því þar er eitthvað leyniorð sem ég man ekki :(
Ég ætla að nota næsta rúma klukkutíma áður en ég þarf að sækja stelpuna mína til að reyna að koma saman einhverri kynningu fyrir morgundaginn og vona það besta. Þetta er bara pirrandi :)
Ég ætla að nota næsta rúma klukkutíma áður en ég þarf að sækja stelpuna mína til að reyna að koma saman einhverri kynningu fyrir morgundaginn og vona það besta. Þetta er bara pirrandi :)
Posted by Kristin G. Snaeland | 0 comment(s)
Þetta er ný síða sem ég er að nota í námi mínu í Kennaraháskólanum. Okkur er ætlað að skrá hérna inn upplifun okkar af notkun fjarkennslubúnaðar.
Posted by Kristin G. Snaeland | 0 comment(s)
